30.11.2007 | 17:18
Breytt útlit
Var að breyta útliti bloggsíðunnar, er miklu ánægðari með hana svona. Sit reyndar hér heima í engu veðri.....það er hvorki vont né gott.......smá vindur og snjókoma en þrátt fyrir það er ekki flogið. Vinkona okkar hjónanna kom í gær frá Reykjavík og er strand. Gott að hafa hana en alltaf óþægilegt að vera strand. Það var því farið út í búð keypt lambalæri og ís og slegin upp matarveisla.
Skemmtilega gaman að svona veðri sem hvorki er af né á og ekkert hægt að gera nema njóta þess að vera til innan um alla þá sem manni þykir vænst um. 1sti í jólum hefst hjá mér í dag
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.